Íþróttavika Evrópu 2024 – Dagskrá UDN

DalabyggðFréttir

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið til verkefna sem munu tengjast vikunni. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

UDN (Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga) ásamt aðildarfélögum sambandsins mun standa fyrir nokkrum viðburðum þessa daga.  Hér er meðfylgjandi glæsileg og fjölbreytt dagskrá (með þeim fyrirvara að hún geti breyst og eins eitthvað bæst við). Hver viðburður verður svo auglýstur sérstaklega og hvetjum við ykkur til að fylgjast með á Facebook-síðu UDN.

Athygli er vakin á því að UDN mun þjófstarta dagskránni 22. september í Búðardal og einnig verður viðburður 7. október bæði á Reykhólum og í Búðardal.

Von UDN er sú að allir geti fundið eitthvað í dagskránni sem vekur áhuga.

Verum virk, verum saman!

Sjá einnig: BeActive Iceland Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands – ÍSÍ

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei