Dalabyggð auglýsir eftir framleiðindum, veitinga-/verslunar- og/eða þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf sveitarfélagsins til starfsmanna Dalabyggðar.
Fyrirkomulaginu verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf ásamt upptalningu á aðilum í Dalabyggð sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og/eða þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin á tímabilinu frá 16. desember 2024 – 1. mars 2025.
Skilyrði fyrir þátttöku er að rekstraraðili/fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi í Dalabyggð.
Um er að ræða á sjötta tug gjafabréfa sem afhent verða starfsmönnum Dalabyggðar um miðjan desember 2024.
Áhugasamir skrá sig til leiks með því að senda tölvupóst á netfangið dalir@dalir.is
Skráningafrestur er til og með 8. desember n.k.
Nánari upplýsingar um verkefnið á dalir@dalir.is eða í síma 430-4700