DAGSKRÁ
Jörvagleði, lista- og menningarhátíð Dalamanna verður haldin dagana 23.-27. apríl 2025.
Hér má kynna sér dagskrá hennar:
MIÐVIKUDAGURINN 23. APRÍL – Síðasti vetrardagur

Hægt að skoða svæðið eða kaupa leiðsögn og drekka í sig sögulegt umhverfi staðarins.

Mikið úrval af fallegu handverki handverksfólks á öllum aldri í Dölunum.

Afurðir beint frá býli, leiksvæði fyrir börnin. Gaman að kíkja á dýrin á bænum.

Sigursteinn Sigurðsson, arkitekt og menningarfulltrúi Vesturlands kemur með erindi/hugvekju fyrir upphaf sumars.
Þar sem Stóri Plokkdagurinn er sunnudaginn 27. apríl mun vera hægt að nálgast á þessum viðburði poka og hanska til að plokka.


Húsið opnar kl. 19:00, Gummi Sveinn spilar frá kl. 22:00. Barinn opinn. Frábært tækifæri til að hita upp fyrir helgina!
FIMMTUDAGURINN 24. APRÍL – Sumardagurinn fyrsti

Hægt að skoða svæðið eða kaupa leiðsögn og drekka í sig sögulegt umhverfi staðarins.

Mikið úrval af fallegu handverki handverksfólks á öllum aldri í Dölunum.

Ingibjörg Þóranna Steinudóttir og Einar Hlöðver Erlingsson opna nýja ullarvinnslu sem þau hafa komið upp á jörðinni.

Skátafélagið Stígandi með fjör af sinni alkunnu snilld fyrir stuðpinna á öllum aldri.

Gaman væri að sjá sem flesta skarta íslenska þjóðbúningnum.

Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar í rómaðri uppsetningu Kómedíuleikhússins. Ókeypis aðgangur í boði Dalabyggðar.

Hreinn Friðfinnsson frá Bæ (1943-2024) er án efa þekktasti myndlistarmaður sem Dalabyggð hefur alið. Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, frá Brautarholti, heldur erindi um þennan sveitunga sinn þar sem hann mun freista þess að draga saman nokkur helstu stef og hugmyndir listamannsins, eins og þau þróuðust í tímans rás. Og sýna hvernig heimahagarnir urðu honum æ hugleiknari eftir því sem tímar liðu.

Laxdæla hefur um aldir verið ein ástsælasta Íslendingasagan. Þar er allt vaðandi í hjónaskilnuðum og einnig spádómum sem sjaldnast er þó skeytt um. Vilborg rýnir í þessa þætti Laxdælu.

Hvernig voru Dalirnir fyrir 1000 árum? Hvernig var fólkið? Hvernig voru krakkarnir? Skemmtileg stund fyrir börnin – öll velkomin.

Uppistand þar sem „rugl“ verður lögmál og „skipulag“ verður bara óþarft orð. Ef þú átt erfitt með að hlæja þá er þetta eitthvað fyrir þig – ef þú átt auðvelt með það, þá skaltu koma með varamaga. Miðaverð: 5.990 í forsölu og 7.500 við innganginn.
Forsala í Dalabúð 22., 23. og 24. apríl frá kl. 16-18 alla dagana. Athugið, enginn posi. Hraðbanka er að finna í Krambúðinni við Vesturbraut.
FÖSTUDAGURINN 25. APRÍL

Hægt að skoða svæðið eða kaupa leiðsögn og drekka í sig sögulegt umhverfi staðarins.

Mikið úrval af fallegu handverki handverksfólks á öllum aldri í Dölunum.

Kaffi og kökur að hætti Estu. Sjá dagskrá að deginum til hér fyrir neðan.
Músík Bingó hefst kl. 21:00 og opið til kl. 01:00, sjá síðar í dagskránni.

– Ljósmyndasýningin „Mundi“ – Gríma Kristinsdóttir
Gríma opnar sýningu sína: „Á Ströndum, endamörkum veraldar við Trékyllisvík. Myndaði ég Munda frá Finnbogastöðum. Bændasamfélagið með faðminn opinn, velgjörðir á borðum, tignarleg fjöllin, hafið bláa, veg okkar allra. Birtuna og hverfulleikann“. Sýningin verður svo opin áfram á opnunartíma Árbliks.
– Sr. Snævar Jón Andrésson fjallar um séra Gunnar Pálsson skólameistara, skáld og prest í Hjarðarholti.
– Birna Lárusdóttir, Fornleifastofnun Íslands – Ofan jarðar og neðan: Fornleifarannsóknir í Ólafsdal. Í erindinu verður sagt frá fornleifarannsóknum síðustu ára í Ólafsdal. Fjallað verður um hinar einstöku minjar frá tímum búnaðarskólans sem margir þekkja en sömuleiðis sagt frá yfirstandandi rannsóknum á landnámsskála sem fannst óvænt inni á dal fyrir nokkrum árum. Fleiri minjar sem gætu verið frá fyrstu tíð hafa síðan uppgötvast í nágrenninu.
– Afhending verðlauna til íþróttamanneskju UDN.
– Nikkólína spilar fyrir okkur.


Upplifðu æsispennandi heim Dungeons & Dragons!
Í leiknum taka leikmenn að sér hlutverk gæludýra galdrakarls sem verða að vinna saman til að vinna gegn áhrifum gallaðs galdradrykkjar sem hefur breytt galdrakarli þeirra í slím. Verður spilað að mestu leiti á ensku
Ekki er hægt að mæta með eigin karaktera fyrir þetta ævintýri en hægt verður að velja milli 15 mismunandi tilbúinna karaktera – fyrstur kemur fyrstur fær. Einungis verða 6 sæti í boði. Svo lengi sem það er laust pláss við borðið verður hægt að mæta á staðinn og taka þátt en þeir sem hafa pantað hafa forgang. Skráning á atli.freyr@audarskoli.is

Söngkonan Hanna Dóra Sturludóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari flytja fallega tónlist úr ýmsum áttum og spjalla við áheyrendur á milli laga. Efnisskrá með eitthvað fyrir alla. Miðaverð: 4.000 kr.- greitt við hurð, enginn posi.

Rímnatónleikar. Úrvals kvæðafólk úr aðildarfélögum Stemmu kemur fram og flytur meðal annars nýjar rímur.

Það verður biluð stemning þegar Fanney heldur sitt víðfræga Músík Bingó. Eins og venjulegt bingó nema í stað þess að lesa upp tölur þá spilar hún lög sem að fólk þarf að þekkja. 2.000kr inn, bingóspjald fylgir.

Hljómsveitin Gleðilegt fokking ár, sem Heiða, Dala Tommi, Guzzi og Bergur mynda, spilar rokkað pönk eða pönkað rokk í Dalíu. Hljómsveitin samdi og tók upp plötu á síðasta ári og inniheldur hún 12 lög sem heita eftir mánuðum ársins. Frítt inn.
LAUGARDAGURINN 26. APRÍL

Hægt að skoða svæðið eða kaupa leiðsögn og drekka í sig sögulegt umhverfi staðarins.

Hægt að skoða vélar, ferli og afurð vinnslunnar.

Bára Grímsdóttir kennir rímnalög og fjallar um kvæðamenn og skáld af Vesturlandi með hljóðdæmum.

Mikið úrval af fallegu handverki handverksfólks á öllum aldri í Dölunum.

Smiðjan hentar öllum sem vilja virkja hugmyndaflugið og láta sköpunargleðina skína. Hægt verður að teikna, mála og móta hin ýmsu listaverk með tilsögn og handleiðslu.
Efnisgjald kr. 1.500


Gunnar J. Straumland kynnir hvernig hann notar háttbundinn kveðskap í tengslum við myndlýsingar í kennslu.

Spiluð verða 28 spil. Yfirdómari verður Ágúst Þorsteinsson. Skráning fer fram á bridge.is og kjarlak@simnet.is eða í 434-1521. Kaffiveitingar. Spilagjald er 5.000 kr.- á par.

Stefán Skafti Steinólfsson frá Ytri-Fagradal á Skarðsströnd fjallar um hagyrðinga og skáld í Dölum.

Chris Foster kynnir langspil, sögu þess og hvernig hægt er að spila á það. Þátttakendur fá að prófa að spila. Þeir sem eiga langspil eru hvattir til að koma með það ef kostur er á. Chris Foster og Bára Grímsdóttir verða með stutta tónleika í lokin.

Bókakynningar

Dagskráin mun spanna lög yfir 50 ára tímabil og því um fjölbreytta dagskrá að ræða. 25 manna kór með hljómsveit. Miðaverð: 5.000kr.- Miðasala í Dalabúð 24., 25. og 26. apríl frá kl. 16-18 alla dagana. Athugið, enginn posi. Hægt að greiða með pening eða millifærslu.

Þau munu syngja og skemmta fram á kvöld sem endar svo í karókí.
SUNNUDAGURINN 27. APRÍL

Dagurinn markar upphaf plokk tímabilsins, snjó farið að leysa, plast og pappír bíða eftir að vera plokkað og flokkað. Hvetjum alla íbúa til að plokka.

Hægt að skoða svæðið eða kaupa leiðsögn og drekka í sig sögulegt umhverfi staðarins.

Hægt að skoða vélar, ferli og afurð vinnslunnar.

Mikið úrval af fallegu handverki handverksfólks á öllum aldri í Dölunum.

Kaffi og kökur að hætti Estu. Ljósmyndasýning Grímu Kristinsdóttur er opin á sama tíma.

Afhjúpun á fyrstu jólasveinunum í verkefninu „Íslensku jólasveinarnir eru úr Dölunum“.
Meðal dagskráratriða eru: Árni Björnsson, erindi. Sönghópurinn Kvika syngur nokkur lög við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Þorgrímur Einar Guðbjartsson segir frá tilurð verkefnisins. Einar Svansson afabarn Jóhannesar segir lítillega frá skáldinu og fl. Kaffi og meðlæti að sveitasið í lok dagskrár.