Kynningafundir vegna breytinga á aðalskipulagi

DalabyggðFréttir

Opið hús/tveir kynningarfundir vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi Dalabyggðar verða haldnir miðvikudaginn 3. júní nk. frá kl. 15:00 til 21:00 í félagsheimilinu Dalabúð að Miðbraut 8 í Búðardal.

Fyrri fundurinn verður haldinn milli kl. 15:00 og 18:00 og snýr að breytingu á aðalskipulagi vegna skilgreiningar á iðnaðarsvæði í landi Sólheima.

Síðari fundurinn verður haldinn milli kl. 18:00 og 21:00 og snýr að breytingu á aðalskipulagi vegna skilgreiningar á iðnaðarsvæði í landi Hróðnýjarstaða.

 

Breyting á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 vegna skilgreiningar á iðnaðarsvæði í landi Sólheima.

Breytingin felst í að skilgreina iðnaðarsvæði vegna uppbyggingar vindlundar til raforkuframleiðslu.

Sjá nánar: Sólheimar aðalskipulagsbreyting

Breyting á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 vegna skilgreiningar á iðnaðarsvæði í landi Hróðnýjarstaða.

Breytingin felst í að skilgreina iðnaðarsvæði vegna uppbyggingar vindlundar til raforkuframleiðslu.

Sjá nánar: Hróðnýjarstaðir aðalskipulagsbreyting

 

Eftir kynningu (Opið hús) á ofangreindum skipulagsbreytingum (skipulagsgögnum) verða þau lögð fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd og sveitarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði sveitarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athugasemdir við þær vera að minnsta kosti 6 vikur.

Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi.

Athugið!

Samkvæmt auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tók gildi 25.maí s.l. er allt að 200 manns heimilt að koma saman í hverju sóttvarnarrými.

Með tilliti til þess verður hámarks gestafjöldi í Dalabúð í kynningarfundum vegna breytinga á aðalskipulagi Dalabyggðar sem verða haldnir 3.júní n.k. 200 manns á hvorn.

Ekki verður unnt að gæta að 2ja metra bili manna á milli í hvívetna þó ákveðinn hluti hússins verði afmarkaður fyrir þá sem kjósa að halda bilinu.

Þá verður fundunum einnig streymt á YouTube síðu Dalabyggðar þegar þeir hefjast, athugasemdum er hægt að skila á netfangið skipulag@dalir.is.

Viðburður á Facebook

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei