Laust starf við Auðarskóla: Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast

DalabyggðFréttir

Auðarskóli leitar að leikskólakennara til starfa.

Ertu jákvæður og skapandi og vilt vinna með leikskólabörnum?

Auðarskóli er samrekin leik-, grunn- og tónlistarskóli. Skólinn er staðsettur í Búðardal sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á skólaþróun, fagmennsku og skapandi leikskólastarf í anda menntastefnu Dalabyggðar. Einkunnarorð skólans eru Ábyrgð-Ánægja-Árangur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna.
  • Kennsla og umönnun ungra barna.
  • Skipulagningu og útærsla faglegs starfs undir stjórn aðstoðarleikskólastjóra.
  • Þátttaka í foreldrasamstarfi í samráði við stjórnanda.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur kennara:

  • Starfsleyfi sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með ungum börnum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Metnaður til að þróa gæða skólastarf.
  • Stundvísi, áreiðanleiki og reglusemi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Fáist ekki menntaður kennari í stöðu sem auglýst er, er heimilt að ráða annan í stöðuna og ræður hæfni umsækjanda þar um. Önnur uppeldismenntun og/eða reynsla er þá metin.

Nánari upplýsingar veitir Herdís Erna Gunnarsdóttir, skólastjóri, í síma 4304757. Senda má fyrirspurn á netfangið: herdis@audarskoli.is. Umsóknir á að senda á sama netfang.

Auglýsing birt 5. mars 2025

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei