Frá því ágúst hefur ljósmyndasýningin Réttir eftir Hjalta Sigfússon smala á Stóra-Vatnshorni verið að finna í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Sú sýning verður nú um helgina uppi í Samkaupum Búðardal.
Á sýningunni er að finna myndir eftir Hjalta teknar á síðustu árum í réttum í Haukadal af bændum, búfénaði og aðkomumönnum.
Hjalti vann ljósmyndasamkeppni sem haldin var á vegum Flikr@Iceland, Höfuðborgarstofu og Menningarnótt 2010. Í verðlaun hlaut hann ljósmyndasýningu í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Hjalti er áhugaljósmyndari með mikinn áhuga á íslenskri náttúru og öllu því sem hún hefur upp á að bjóða.