
Um er að ræða nútímalegt verk sem hefur allt til að bera sem prýðir góðan gamanleik. Sjö leikarar fara með hlutverk og eru nokkrir þeirra að stíga í fyrsta sinn á svið með leikfélagi Hólmavíkur. Auk leikaranna tekur fjöldi fólks þátt í undirbúningi á bak við tjöldin.
Áformað er að þrjá sýningar verði á Hólmavík í páskavikunni og jafnvel ein til viðbótar í maí, ef næg aðsókn fæst. Síðan stendur til að fara í sýningarferð um Vestfirði um sjómannadagshelgina.
Leikfélagið fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir og má því búast við fleiri uppákomum áður en árið er á enda. Þá er upplagt fyrir þá sem leggja leið sína á Aldrei fór ég suður á Ísafirði að byrja ferðina á Hólmavík og sjá leiksýningu.
![]() |
![]() |
![]() |