Nú gefst fólki á Norðurlandi og Vestfjörðum tækifæri til að stunda nám í Menntastoðum með dreifnámsfyrirkomulagi eða fjarfundabúnaði.
Dreifnám felst í því að kennt er einu sinni í viku á þriðjudögum frá kl. 16:00-21:00 og annan hvern laugardag frá kl. 09:00-17:00. Kennslan fer fram á Akureyri en þeir sem búa annars staðar geta sótt námið í gegnum fjarfundabúnað í námsverum, meðal annars á Hólmavík. Námið er skipulagt í samvinnu við símenntunarmiðstöðvar SÍMEY, Farskólann á Norðurlandi vestra, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Þekkingarnet Þingeyinga.
Menntastoðir hefjast 5. nóvember 2010 og lýkur í lok maí 2011. Námið hefst á tveimur vinnuhelgum og kennt er frá hádegi á föstudegi fram á sunnudag. Mikilvægt er að allir nemendur mæti þá til Akureyrar. Menntastoðir eru nám á framhaldsskólastigi og gefur um 50 einingar inn í Háskólabrú Keilis. Aldurstakmark 20 ára og eldri.
Markmið Menntastoða er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Helstu námsgreinar eru stærðfræði, íslenska, upplýsingatækni, enska og danska.
Skráning og nánari upplýsingar um námið er hjá SÍMEY í síma 460-5720, betty@simey.is, valgeir@simey.iseða á www.simey.is