Minnum á Jöfnunarstyrkinn – umsóknarfrestur til og með 15. október

DalabyggðFréttir

Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni.

Lögheimili má ekki vera í nágrenni við skólann sem nemendur stunda nám við. Hér má sjá töflu sem skilgreinir hvaða póstnúmer teljast vera í nágrenni við skóla.

  • Fjarnám er ekki styrkhæft.
  • Dreifnám er aðeins styrkhæft ef nemendur þurfa að mæta í skólann að minnsta kosti 50% af dagafjölda nemenda sem stunda dagsskóla.

Jöfnunarstyrkur skiptist í dvalarstyrk og akstursstyrk:

  1. Akstursstyrkur er ætlaður þeim nemendum sem keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu. Lögheimili má þó ekki vera í nágrenni skóla, sjá töflu um skilgreiningar á nágrenni skóla hér fyrir ofan. Akstursstyrkur er einnig fyrir þá nemendur sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur.
  2. Dvalarstyrkur er fyrir þá nemendur sem flytja a.m.k. 30km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til þess að geta stundað nám sitt, það er, þeir nemendur sem eru á heimavist og/eða greiða leigu.

Hægt er að fá jöfnunarstyrk að hámarki í 4 ár eða 8 annir.

NÁNARI UPPLÝSINGAR: MENNTASJÓÐUR NÁMSMANNA

Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei