Um hundahald í Dalabyggð gildir samþykkt um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003. Samþykktina má finna HÉR.
Alla hunda í Búðardal skal skrá á skrifstofu Dalabyggðar og greiða skráningargjald, eftir það er greitt árgjald. Í skráningargjaldi er innifalin örmerking, skráning, merking, ábyrgðartrygging, hundahreinsun og árgjald það ár. Í árgjaldi er innifalin ábyrgðartrygging og hundahreinsun.
Hundahreinsun í dreifbýli fer fram samhliða öðrum ferðum dýralæknis og er á kostnað eigenda.
Tilgangur hreinsunarinnar er að fyrirbyggja sýkingar hjá mönnum af völdum band- og spóluorma í hundum.
Þá viljum við einnig benda hundaeigendum á mikilvægi ábyrgðartryggingarinnar sem er innifalin í skráningargjaldi og árgjaldi.
Skrifstofa Dalabyggðar er opin frá kl.09:00 til 13:00 alla virka daga og þar er hægt að skrá hunda.