Ormahreinsun hunda

DalabyggðFréttir

Eiganda eða umráðamanni hunds er skylt að láta ormahreinsa hund sinn árlega. Tilgangur hreinsunarinnar er að fyrirbyggja sýkingar hjá mönnum af völdum bandorma og spóluorma í hundum. [57. gr. reglugerðar nr. 941/2002].

Eigendur / umráðmenn hunda skulu setja sig í samband við Gísla Sverri Halldórssyni dýralæki að Ægisbraut 19 í Búðardal og mun hann þá sjá um hreinsunina.

Skv. gjaldskrá Dalabyggðar fyrir hundahald er hundahreinsun og ábyrgðartrygging innifalin í árlegu gjaldi sem hefur þegar verið innheimt af eigendum skráðra hunda.

Eigendur óskráðra hunda í Búðardal ber að skrá hunda sína á skrifstofu Dalabyggðar. Einnig má skila útfylltu skráningarblaði hjá dýralækni samhliða hundahreinsun og mun þá Dalabyggð greiða hreinsunina og kaupa ábyrgðartryggingu fyrir hundinn.

Hundahreinsun í dreifbýli fer fram samhliða öðrum ferðum dýralæknis. Hundaeigendur í dreifbýli sem ekki eiga sauðfé eru beðnir um láta dýrarlækni vita af þeim hundum svo hægt verði að meðhöndla þá í sömu ferð.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei