Fræðslunefnd Dalabyggðar óskar eftir framboðum í ungmennaráð.
Í ungmennaráði geta orðið allir þeir sem eiga lögheimili í Dalabyggð og eru á aldrinum 14 – 20 ára.
Hér má sjá kynningu á ungmennaráði og frekari upplýsingar um störf þess.
Hlutverk ungmennaráðs er m.a.:
- Að veita sveitarstjórn ráðgjöf um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu.
- Að gæta hagsmuna ungs fólks, koma skoðunum þeirra og tillögum til skila.
- Að veita ungu fólki fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum.
- Að efla tengsl ungmenna í sveitarfélaginu og auka tengsl þeirra við stjórnkerfi sveitarfélagsins.
Stjórn ungmennaráðs skipa 4 fulltrúar; formaður, varaformaður, ritari og varamaður.
Ungmennaráð er skipað til tveggja ára í senn og skipað er í helming sæta árlega. Því er nú skipað í tvö sæti.
Framboðum skal skila til tómstundafulltrúa Dalabyggðar á netfangið tomstund@dalir.is fyrir 16.11.2021, þar sem fram kemur kynning á ykkur ásamt ástæðu þess að þið viljið starfa í ráðinu.
Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við Jón Egil Jónsson, tómstundafulltrúa á netfangið tomstund@dalir.is eða í síma 867-5604.