
Skýrslan er til kynningar á skrifstofum og vefsíðum sveitarfélaganna og á vefnum www.samtakamattur.is. Leitað er eftir ábendingum um efni hennar og þær má senda og stíla þannig: Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar, b.t. formanns – Ingibjargar Emilsdóttur, skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík. Einnig má senda ábendingar með tölvupósti til ingaemils@strandabyggd.is (með afriti á matthildur@alta.is). Óskað er eftir að þær berist fyrir 24. febrúar 2017.
Þessi auglýsing er birt með vísun í 23. grein skipulagslaga og 6. grein laga um umhverfismat áætlana.
Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar