Heilbrigðisstofnun Vesturlands og sveitarfélagið Dalabyggð auglýsa nýtt sameiginlegt starf í Búðardal frá 1. janúar 2025.
Um er að ræða 100% starf sem skiptist í 50% starf hjá HVE og 50% starf hjá Dalabyggð.
Aðsetur starfsmanns verður á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útköll í sjúkraflutningum á dagvinnu og þátttaka í bakvöktum utan dagvinnu.
- Umhirðu og viðhald húsnæðis sjúkraflutninga og tækja auk annarra tilfallandi verkefna
- Umhirða og viðhald húsnæðis og tækja í Silfurtúni og á heilsugæslustöð HVE í Búðardal.
- Umhirða og viðhald húsnæðis, lóða og búnaðar í stofnunum Dalabyggðar í Búðardal.
- Ýmis tilfallandi verkefni á Silfurtúni og í Auðarskóla sem viðkomandi sinnir að beiðni yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðurkennt nám í sjúkraflutningum og starfsleyfi landlæknis er skilyrði.
- Viðbótarnám í sjúkraflutningum og reynsla af sjúkraflutningum er kostur.
- Gilt ökuskírteini og gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C eða C1-réttindi) er skilyrði.
- Krafa er gerð um hreint sakavottorð.
- Reynsla og hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum s.s. viðhaldi húsnæðis, iðnmenntun er kostur.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og metnaður.
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar skilyrði.
- Jákvætt viðmót og þjónustulund skilyrði.
- Góð íslensku- og ensku kunnátta er skilyrði.