Sorphirða – seinkun á losun og dreifin íláta sunnan Búðardals

Kristján IngiFréttir

Vegna bilunar seinkar sorphirðu á grænni tunnu í Búðardal og grænum og brúnum tunnum sunnan Búðardals um einn dag, til miðvikudagsins 6. nóvember.

Gámafélagið hóf dreifingu á nýjum tunnum fyrir plast sunnan Búðardals í dag. Tekið var tillit til þeirra umsókna sem höfðu borist fyrir helgi.  Í leiðinni hafa körin verið endurmerkt fyrir pappír/pappa. Eftir tæmingu á miðvikudaginn skal því aðgreina í ílátin til samræmis við merkingar og leiðbeiningar Gámafélagsins. Dreifing og endurmerking íláta í og vestan Búðardals verður í lok nóvember.

Aftur er minnt á frestinn á morgun, þriðjudaginn 5. nóvember, til að sækja um breytta samsetningu eða samnýtingu íláta.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei