Sveitarstjórn Dalabyggðar er heimilt að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar,- íþrótta,- æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf skv. gildandi reglum.
Rétt til styrks eiga félög og félagasamtök sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) eru fasteignaeigendur í Dalabyggð
b) reka starfsemi sína í húsnæðinu sbr. 1. gr. reglna þessara, með þeim undantekningum sem greinir í 3. gr. reglna
c) starfsemin skal vera á sviði menningar, íþrótta, tómstunda eða mannúðarstarfa og/eða góðgerðarmála sem er rekin í almannaþágu eða í þágu æskulýðs
d) um mannúðarsamtök gildir að góðgerðarstarfsemi verður að meginstefnu að vera unnin í sjálfboðavinnu félagsmanna og ná út fyrir raðir þeirra, s.s. í formi styrkja, gjafa eða stuðnings fyrir almannaheill og samfélagið
e) njóti starfsemin annarra rekstrarstyrkja frá Dalabyggð eða ígildi þeirra skal tekið tillit til þess við úthlutun styrkja til greiðslu fasteignaskatts
f) starfsemin má ekki vera rekin í ágóðaskyni en heimilt er að innheimta tímabundnar tekjur fyrir notkun húsnæðisins ef þær tekjur eru eingöngu nýttar til reksturs húsnæðisins, sbr. þó 3. gr. reglna
Sækja skal um styrk til greiðslu fasteignaskatts á þar til gerðum eyðublöðum. Með umsókn um styrki skal fylgja ársreikningur sl. rekstrarárs, lög félagsins þar sem fram koma markmið þess og stutt greinargerð um starfsemina.
Umsóknarfrestur um stuðning er til og með 1. maí 2025.
Eyðublað fyrir styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka