Sumarlokun skrifstofu Dalabyggðar 2024

DalabyggðFréttir

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Dalabyggðar lokuð frá frá 22. júlí til og með 5. ágúst nk. Skrifstofan opnar aftur eftir sumarleyfi þriðjudaginn 6. ágúst kl. 09:00.

Við bendum á að hægt er að senda tölvupóst á netfangið dalir@dalir.is meðan á sumarlokun stendur og við svörum við fyrsta tækifæri.

Röskun getur orðið á útgáfu einhverra reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar.

Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er því föstudagurinn 19.júlí, þá er hefðbundin opnun skrifstofu og símatíma eða frá kl.09:00 til 13:00.

Við þökkum skilninginn og óskum ykkur ánægjulegs sumars!

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei