Leynist endurskinsmerki á þínu heimili?
Í myrkri sjást óvarðir vegfarendur (gangandi, hjólandi) illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða, er notkun endurskinsmerkja þess vegna mikilvæg og í sumum tilfellum nauðsynleg.
Það er staðreynd að ökumenn sjá óvarða vegfarendur með endurskin fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða.
Allir ættu að nota endurskinsmerki, jafnt börn sem fullorðnir. Börn sjást verr en fullorðnir og eiga það auk þess til að taka hvatvísar ákvarðanir án þess að hugsa um þær hættur sem eru fyrir hendi. Mikilvægt er að foreldrar noti endurskinsmerki til þess að sýna börnum sínum gott fordæmi.
– Lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar