Vesturbrú – viðskiptahraðall, opið fyrir skráningar

DalabyggðFréttir

Vesturbrú er sex vikna hraðall fyrir verkefni sem stuðla að sjálfbærri framtíð Vesturlands. Markmið hraðalsins er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.

Viðskiptahraðallinn Vesturbrú er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Vesturlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja komast lengra með sín verkefni. Sótt er um í teymum, en æskilegt er að þau samanstandi af einum til þrem einstaklingum. Teymin geta verið starfsfólk fyrirtækja, sem standa að verkefninu eða sjálfstæðir frumkvöðlar í startholunum. Hraðallinn er sérhannaður með þarfir þátttökuteymanna í huga, þannig hafa teymin áhrif á fræðsluna sem stendur þeim til boða. 

Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Vesturlandi og víðar á einkafundum. Dagskráin samanstendur einnig af ráðgjafafundum, vinnustofum, fræðslufundum og þátttakendur mynda sterkt tengslanet sín á milli. 

Hraðallinn leggur áherslu á nýjar hugmyndir og þróun fjölbreytts atvinnulífs til að stuðla að sjálfbæru Vesturlandi. Vesturbrú fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast jafnframt þrisvar sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Vesturlandi. 

Hraðallinn er í samvinnu við RATA sem hefur undanfarin ár unnið að því að styðja við umhverfi frumkvöðla á Íslandi og hefur m.a. haldið utan um viðskiptahraðlana Sóknarfæri á Suðurlandi og Vaxtarrými í Norðanátt á Norðurlandi. 

Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember. Viðskiptahraðallinn er þátttakendum að kostnaðarlausu fyrir utan ferðakostnað.

Rafrænn kynningarfundur á morgun, fimmtudaginn 9. nóvember 11:30-12:00.

Skráningarformið má nálgast hér: Skrá fyrirtæki/verkefni í Vesturbrú

Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.

Við bendum einnig á Facebook-hópinn (Ný)skapandi fólk á Vesturlandi. Þetta er hópur þar sem frumkvöðlar og öll þau sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi koma saman til að skapa, tengjast og þróa nýsköpunarhugmyndir á Vesturlandi – endilega óskið eftir inngöngu í hópinn ef það á við um ykkur.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei