Ágúst, 2024

24ágú13:00„Eigi skal gráta Björn bónda“ Ólöf ríka á Skarði

Nánari upplýsingar

Málþing 24. ágúst 2024 að Nýp á Skarðsströnd kl. 13:00–14:30

Dagskrá

13:00–13:10 Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur setur þingið

13:10–13:40 Sigríður Hagalín Björnsdóttir rithöfundur: Á þeysireið um fornbréfasafnið – leitin að Ólöfu ríku
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur glímt við Ólöfu ríku Loftsdóttur í mörg ár, eða frá því að hún hóf að skrifa skáldsöguna Hamingja þessa heims, sem kom út 2022. Hún segir frá samskiptum þeirra Ólafar, sem hafa vissulega verið nokkuð einhliða, því Ólöf birtist fyrst og fremst í munnmælasögum annars vegar, og nokkrum þyrrkingslegum skjölum í Fornbréfasafninu hins vegar. Ólöf sést þó ekki fyrir og skýtur sífellt upp kolli á ólíklegustu stöðum; sem dagróðrarbátur, draumkona, nunna í Vesturbænum að borða ís í brauðformi. Sigríður er enn að reyna að hafa hendur í hári hennar og kynnast þeirri konu af holdi og blóði sem býr að baki þjóðsagnanna og fornbréfanna. Hún vinnur nú að framhaldi Hamingju þessa heims, og tekst kannski einhvern tímann að klára það.

13:40–14:10 Guðjón Th. Erlendsson arkitekt: Skjaldarmerki Ólafar og Björns á Skarði, og landsslag Skarðsættarinnar
Guðjón kynnir brot úr yfirstandandi rannsókn sinni á skjaldamerkjum íslenskra aðalsmanna og kvenna. Þá segir hann frá uppruna og erfðum skjaldarmerkja Skarðshjónanna og kenningum tengdum þeim, allt frá jörlum til íslenska skjaldarmerkisins. Skjaldarmerki miðalda voru vörumerki þeirra tíma og þeim fylgdu réttindi og skyldur sem hafa áhrif enn þann dag í dag. Í lok erindisins ræðir Guðjón stuttlega um landslag og heimsmynd þessa fólks út frá alþjóðaumhverfi Breiðafjarðar og Skarðsjarðarinnar. Gömul kort verða ennfremur skoðuð og tenging þeirra við gervihnattamyndir nútímans.

14:10–14:40 Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur: Ólöf ríka og Svalbarðsklæðið
Í erindinu verður fjallar Steinunn um útsaumað altarisklæði frá Svalbarði á Svalbarðsströnd og þá kenningu að það sýni sögu Ólafar ríku. Klæðið var saumað út á tímum hennar en mikil tengsl voru á milli Skarðsverja og Svalbarðinga á miðöldum. Þá mun Steinunn segja frá altarisbríkinni í Skarðskirkju en Ólöf kemur fyrir í henni í hlutverki gjafara (e. donator).

14:40 Þingi slitið

Að málþingi loknu verður farið í Skarðskirkju og altarisbríkin þar skoðuð.

Meira

Klukkan

(Laugardagur) 13:00

Staðsetning

Nýp

Skarðsströnd

X
X