Eiríksstaðahátíð 2025
12júl(júl 12)10:0013(júl 13)18:00Eiríksstaðahátíð 2025
Nánari upplýsingar
Verið velkomin á sumarhátíð Eiríksstaða helgina 12.-13. júlí Það verður fjölmargt í boði en þemað í ár er handrit og handritagerð, því núna viljum við vinna tilraunafornleifafræðirannsóknir
Nánari upplýsingar
Verið velkomin á sumarhátíð Eiríksstaða helgina 12.-13. júlí
Það verður fjölmargt í boði en þemað í ár er handrit og handritagerð, því núna viljum við vinna tilraunafornleifafræðirannsóknir á því hvernig miðalda handrit, eins og t.d. Hauksbók (sem Eiríks saga rauða er m.a. skrifuð í), voru verkuð og unnin
Þetta verður hátíð upplifana þar sem einvala lið sérfræðinga kemur víðsvegar að úr Miðgarði. Fylgist með viðburðinum vaxa og sjáið hverjir munu koma til okkar á þessa skemmtilegu og fræðandi helgi.
Leggið leið ykkar vestur í Dali og takið þátt í því með okkur að leysa leyndardóma og ráðgátur fortíðarinnar með okkur.
Nánari upplýsingar: https://fb.me/e/57DPe43aD
Meira
Klukkan
12. Júlí, 2025 10:00 - 13. Júlí, 2025 18:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Eiríksstaðir