Október, 2024

24okt17:0020:00Frá hugmynd að rekstri með Huldu Brynjólfsdóttur

Nánari upplýsingar

Íbúum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra býðst fjölbreytt fræðsla haust og vetur 2024-2025 á vegum Leiða til byggðafestu. 

Boðið er upp á ókeypis námskeið í Félagsheimilinu Tjarnarlundi í Saurbæ fimmtudaginn 24. október nk. kl. 17:00 – 20:00

Hulda er eigandi ullarvinnslunar Uppspuna. Hulda er búfræðingur og kennari. Alin upp í sveit og býr nú að Lækjartúni í Rangárvallasýslu. Þar reka hún og maðurinn hennar blandað bú, þar sem sauðfé og nautgripir leika lykilhlutverk. Ullarvinnsluna Uppspuna opnuðu þau árið 2017 með hinum störfum á bænum. Hún ætlar að fjalla um það að fá hugmynd og hvaða skref þarf að taka til að byrja. Hvað það er sem þarf til að stofna fyrirtæki, byggja það upp og halda því gangandi. Hulda ætlar að fara yfir þætti sem skipta máli frá því að hugmynd fæðist og yfir í starfandi fyrirtæki. 

SKRÁNING HÉR

Meira

Klukkan

(Fimmtudagur) 17:00 - 20:00

Staðsetning

Tjarnarlundur

Kirkjuhóll

X
X