Íbúafundur um mögulega sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra
14okt17:0019:00Íbúafundur um mögulega sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra
Nánari upplýsingar
Dalabyggð og Húnaþing vestra hafa undanfarin misseri átt í viðræðum um sameiningu. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna vinnur að áliti um tillögu um sameiningu sem íbúar kjósa um 28.
Nánari upplýsingar
Dalabyggð og Húnaþing vestra hafa undanfarin misseri átt í viðræðum um sameiningu. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna vinnur að áliti um tillögu um sameiningu sem íbúar kjósa um 28. nóvember – 13. desember nk.
Samstarfsnefnd um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra boðar hér til íbúafunda, sá fyrri í þessari umferð í Dalabúð þann 14. október kl. 17:00-19:00 og sá seinni í þessari umferð í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 15. október kl. 17:00-19:00.
Á fundunum verður farið yfir stöðu sameiningarviðræðna sveitarfélaganna og leitað eftir sjónarmiðum íbúa varðandi stjórnskipulag og þjónustu sameinaðs sveitarfélags.
Dagskrá:
- Kynning á stöðu sameiningaviðræðna
- Vinnustofa um stjórnskipulag og þjónustu sameinaðs sveitarfélags.
Við hvetjum íbúa til að mæta á fundinn og taka virkan þátt í samtalinu.
Kynningunni verður deilt á netinu. Slóð á fundina verður birt á heimasíðum sveitarfélaganna á fundardag.
Að loknum fundum verður boðið upp á súpu og brauð.
– Samstarfsnefnd um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra
Meira
Klukkan
14. Október, 2025 17:00 - 19:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Dalabúð
Miðbraut 8