Apríl, 2022

12apr20:00Keltnesk orð og örnefni í Íslensku máliKeltnesk orð og örnefni í Íslensku máli

Nánari upplýsingar

Þorvaldur Friðriksson, fornleifafræðingur og fyrrverandi fréttamaður segir frá rannsóknum sínum á keltneskum arfi okkar Íslendinga.
Afhverju eru Dalir og Breiðafjarðarsvæðið aðal bókmenntasvæði Íslands að fornu? Hvað þýða nöfnin Ljárskógar, Fáskrúð og Baula ? Svör við þessu verða gefin á fyrirlestrinum Keltnesk orð og örnefni.
Keltnesk orð og örnefni á Íslandi
Íslendingar eru merkilega samsett þjóð og menn hafa um aldir deilt um uppruna landnámsmanna. Nú er komið í ljós með rannsóknum á erfðaefni að stór hluti landnámsmanna voru Keltar. Þegar betur er að gáð eru keltnesk áhrif í íslenskri menningu miklu meiri en menn hafa til þessa veitt eftirtekt. Þannig er íslensk tunga mjög keltnesku skotin og að því leyti ólík dönsku, sænsku og norsku.
Algeng orð og hugtök á íslensku eru keltnesk og ekki til í hinum norðurlandamálunum. Dæmi um þetta eru: strákur, stelpa, æska, lyf, nöfn fiska, fugla og búfjár t.d. hrútur, gemlingur, kría, krummi, valur, heiðlóa, branda, tros, og algengustu matartegundir Íslendinga, kæfa, bjúga, skyr og blóðmör. Uppruni íslenskra orðatiltækja verður ljós horfi menn til þess keltneska, írsku, og skosku og annarra gelískra tungumála. T.d. „að fá sér eina kríu“, „að sjá ekki glóru“, „að koma einhverjum fyrir kattarnef“.
Helstu örnefni á Íslandi eru óútskýranleg út frá skandinavísku, en auðskýrð út frá írsku og skotsku. Þetta á við um nöfn fjalla eins og Esja, Hekla, Katla, Krafla, Gláma, Gerpir og Ok, fjarða og dala eins og Súgandafjörður, Fnjóskadalur og nesja eins og Tjörnes. Bæjarnöfn eins og Saurbær, Bessastaðir, Bægisá, Tyrfingstaðir. Nöfn hreppa og sýslna eins og Skilmannahreppur, Lýtingstaðahreppur, Árnessýsla og Rangárvallasýsla.
Inn í þennan fyrirlestur, blandast skemmtilegar upplýsingar um matarræði og sterka stöðu kvenna á Íslandi sem var öðruvísi hér en á hinum Norðurlöndunum og er hluti af hinum keltneska menningararfi okkar.

Meira

Klukkan

(Þriðjudagur) 20:00

Staðsetning

Vínlandssetur

Leifsbúð, Búðarbraut

X
X