Ókeypis námskeið: Rekstur lítilla fyrirtækja með Jóni Snorra Snorrasyni prófessor við Háskólann á Bifröst

31mar(mar 31)17:0003apr(apr 3)18:30Ókeypis námskeið: Rekstur lítilla fyrirtækja með Jóni Snorra Snorrasyni prófessor við Háskólann á Bifröst

Nánari upplýsingar

31. mars, 1. og 3. apríl á netinu

Námskeiðslýsing:

Á þessu námskeiði er farið yfir grundvallaratriði og hugtök í tengslum við að þróa viðskiptahugmyndir. Farið verður yfir markaðsgreiningu tækifæra og hvernig viðskipta- og markaðsáætlanir eru byggðar upp. Lögð er áhersla á að þátttakendur geri sér grein fyrir mikilvægi þessara þátta í stofnun og rekstri fyrirtækis.

Námsmarkmið:

Eftir námskeiðið eiga nemendur að:

  • Þekkja að greina tækifæri á markaði
  • Geta sett fram einfalda rekstraráætlun

Námskeiðið er gjaldfrjálst og fer fram á Teams á eftirfarandi dagsetningum:

  • Mánudaginn 31. mars frá 17:00-18:30
    Fyrirlestur um frumkvöðla og einkenni þeirra + spjall/umræður
  • Þriðjudaginn 1. apríl frá 17:00-18:30
    Fyrirlestur um hvernig hugmynd fer á markað + spjall/umræður
  • Fimmtudaginn 3. apríl frá 17:00-18:30
    Fyrirlestur um gerð áætlana + spjall/umræður

Námskeiðið er gjaldfrjálst en skráningar er þörf: Sendið póst með nafni þátttakenda, símanúmeri og nafni ykkar sveitarfélags á endurmenntun@bifrost.is til að skrá ykkur.

Jón Snorri Snorrason er prófessor við Háskólann á Bifröst. Hefur verið forstjóri stórfyrirtækja s.s. Ölgerðin Egill Skallagímsson, Bifreiðar&landbúnaðarvéla (B&L), Öryggismiðstöðvarinnar. Setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja s.s. Lyfju, Vátryggingafélags Ísland (VÍS), Íslenska lífeyrissjóðsins og Verðbréfaþing Íslands. Verið viðloðandi kennslu við háskóla í 40 ár, Forstöðumaður MBA námsins við Viðskiptafræðideild HÍ og síðar lektor þar og verið deildarforseti Viðskiptadeildar á Bifröst.

Skráning í endurmenntun@bifrost.is

Meira

Klukkan

31. Mars, 2025 17:00 - 3. Apríl, 2025 18:30(GMT+00:00)