Tónleikar: Soffía Meldal og Daníel Andri í Dalíu
28jún20:00Tónleikar: Soffía Meldal og Daníel Andri í Dalíu
Nánari upplýsingar
Soffía Meldal og Daníel Andri mæta í Dalíu, Búðardal og halda tónleika föstudagskvöldið 28. júní kl. 20:00 Á tónleikunum langar þau að kinka kolli til
Nánari upplýsingar
Soffía Meldal og Daníel Andri mæta í Dalíu, Búðardal og halda tónleika föstudagskvöldið 28. júní kl. 20:00
Á tónleikunum langar þau að kinka kolli til íslenskra laga og textahöfunda og verða því á dagkrá einungis lög eftir íslenska tónlistarmenn.
Soffía Meldal er ung söngkona uppalin í Búðardal, búsett á Akureyri. Hún lauk framhaldsnámi í rytmískum söng úr Tónlistarskólanum á Akureyri í vor. Soffía hefur sungið á ýmsum viðburðum innan sem og utan tónlistarskólans á síðustu árum.
Daníel Andri er ungur gítarleikari, búsettur á Akureyri. Hann hefur komið að fjölda tónlistarverkefna í gegnum tíðina og verið virkur í tónlistarlífinu fyrir norðan. Daníel spilar t.a.m. í Færibandinu, kennir ungum sem öldnum á gítar, heldur úti pubkvissum og er trúbador.
Húsið opnar kl. 17:30 og tónleikar hefjast kl. 20:00.
Drykkir og léttar veitingar verða til sölu á barnum.
Aðgangseyrir er 3500kr og greiðist við innganginn.
Meira
Klukkan
28. Júní, 2024 20:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Dalía
Miðbraut 15