Sjálfboðavinnuverkefni 2019

DalabyggðFréttir

Umsóknarfrestur um sjálfboðavinnuverkefni Dalabyggðar er til 14. maí. Byggðarráð afgreiðir umsóknir. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta til að hrinda í framkvæmd brýnum umhverfisverkefnum í sínu næsta nágrenni.

 

Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru að umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð, sé ekki í vanskilum við sveitarfélagið og að umsókninni fylgi lýsing á verkefni og kostnaðaráætlun. Forsvarsmaður verkefnis skal hafa samráð við verkstjóra Dalabyggðar um framkvæmd verkefnisins.

 

Reglur og umsóknareyðublöð um sjálfboðavinnuverkefni er að finna á heimasíðu Dalabyggðar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei