Um tíma hefur legið í loftinu að Byggðasafni Dalamanna þurfi að finna nýjan stað undir starfsemi sína.
Undirbúningur er hafinn í tengslum við það ferli og hefur menningarmálanefnd Dalabyggðar ákveðið að efna til opins hugarflugsfundar þar sem íbúar Dalabyggðar fá tækifæri til að koma viðhorfum sínum á framfæri á fyrirkomulagi Byggðasafnsins.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 28. nóvember kl. 18 til 19:30 í Auðarskóla. Fyrirkomulag fundar verður í formi hópavinnu.
Menningarmálanefnd hvetur alla til að leggja höfuðið í bleyti, koma á fundinn og leggja fram hugmyndir sínar varðandi framtíð safnsins. Starfsmenn sveitarfélagsins og fulltrúar í nefndum á vegum sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta enda skarast starfsemi Byggðasafnsins við málefni ýmissa annarra nefnda.
Vinsamlegast skráið ykkur til leiks á netfangið dalir@dalir.is í síðasta lagi þriðjudaginn 26. nóvember. Kaffi í boði á meðan á fundinum stendur.
Menningarmálanefnd Dalabyggðar