Jólatré 2019

DalabyggðFréttir

Jólatré sveitarfélagsins verður eins og fyrri ár staðsett við Auðarskóla. Kveikt verður á ljósunum föstudaginn 29. nóvember og verður dagskráin í ár með örlítið breyttu sniði.

 

Kl. 17 verður opinn skátafundur í Dalabúð þar sem boðið verður upp á kakó, mandarínur, kökur, söng og skemmtun.  Síðan verður farið út, kveikt á ljósunum, sungið og dansað.

 

Allir eru velkomnir.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei