Árleg brenna og flugeldasýning í Búðardal verður á sjávarkambinum neðan við Búðarbraut og skotsvæði á gömlu bryggjunni. Kveikt verður í brennunni kl. 21 og sýningunni skotið upp nokkru síðar.
Varðeldur verður í landi Bjarnastaða í Staðarhólsdal, Saurbæ. Kveikt verður í um miðnætti.
Þurfi að koma til breytinga á brennustæðum og tímasetningum verður það auglýst á vef Dalabyggðar, www.dalir.is.