Áramótabrennur og flugeldasýning

DalabyggðFréttir

Árleg brenna og flugeldasýning í Búðardal verður á sjávarkambinum neðan við Búðarbraut og skotsvæði á gömlu bryggjunni. Kveikt verður í brennunni kl. 21 og sýningunni skotið upp nokkru síðar.

 

 

Varðeldur verður í landi Bjarnastaða í Staðarhólsdal, Saurbæ. Kveikt verður í um miðnætti.

 

Þurfi að koma til breytinga á brennustæðum og tímasetningum verður það auglýst á vef Dalabyggðar, www.dalir.is.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei