Í dag birtist rauður borði á forsíðu dalir.is sem ber heitið „Tilkynningar til barnaverndar“ (sjá meðfylgjandi mynd hér að ofan).
Eins og hefur verið fjallað um í fjölmiðlum þá aukast líkur á álagstímum að börn verði fyrir ofbeldi og/eða vanrækslu.
Þegar skólahald liggur að miklu leyti niðri/er í breyttri mynd þá geta viðbrögð nágranna og aðstandenda skipt sköpum fyrir barnið:
- Veist þú um barn sem býr við óviðunandi uppeldisaðstæður?
- Veist þú um barn sem verður fyrir áreitni?
- Veist þú um barn sem verður fyrir ofbeldi?
- Veist þú um barn sem stofnar heilsu sinni eða þroska í hættu?
- Veist þú um barn og/eða fjölskyldu sem þarf aðstoð?
Samkvæmt lögum ber einstaklingum skylda að tilkynna til barnaverndarnefndar aðstæður barna þar sem grunur leikur á ofbeldi og/eða vanrækslu.
Barn á alltaf að njóta vafans, ef þú ert ekki viss þá er best að hringja og ráðfæra sig við starfsfólk barnaverndar.
Starfsmenn barnaverndar eru alltaf á vaktinni.
Allar upplýsingar eru í rauða borðanum efst á forsíðu www.dalir.is en þær er einnig hægt að nálgast með því að smella HÉR.