Nú eru lausar til umsóknar nokkrar spildur úr landi Fjósa.
Um er að ræða sumarbeitiland B-3, B-5, B-6, B-7, B-8, B-9 og B-10 sem leigt er út til 5 ára, og ræktunarland R-1, R-2, R-3, R-4, R-5, R-6, og R-7 sem leigt er út til 3 ára.
Nánari upplýsingar má finna hér að neðan og hjá skrifstofu Dalabyggðar.
Umsóknir skulu berast á dalir@dalir.is fyrir 18. maí n.k.
Sveitarstjórn hefur samþykkt reglur og gjaldskrá vegna leigu á beitar- og ræktunarlandi í eigu Dalabyggðar sem fá finna hér, ásamt uppdrætti af beitilandi:
Gjaldskrá fyrir geymslur, beitar- og ræktunarland.
Reglur um úthlutun og leigu á beitar- og ræktunarlandi (túnum) í eigu Dalabyggðar
Uppdráttur beitiland í Búðardal 2020
Matjurtargarður í Búðardal
Nú er búið að tæta matjuragarðinn í Búðardal fyrir áhugasama. Gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær, einstaklingar sjá sjálfir um að taka frá reit í matjurtagarði.