Ráðgjöf vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

DalabyggðFréttir

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2021.

Opnað var fyrir umsóknir 8. september og er umsóknarfrestur til kl. 12 á hádegi 6. október.

Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Ráðgjafi á vegum SSV býður upp á ráðgjöf og aðstoð við gerð styrkumsókna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.

Hægt er að hafa beint samband við ráðgjafa:
Margrét Björk Björnsdóttir maggy@west.is s: 864-2955

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei