Kjörfundur í Dalabyggð vegna kosninga til embættis forseta Íslands verður haldinn laugardaginn 30. júní 2012 kl. 10-20 í Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11, Búðardal.
Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað.
Nánari upplýsingar um kosningarnar er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins.
Sérstök athygli er vakin á því að kjörfundi lýkur kl. 20.
Kjörstjórn Dalabyggðar