Kjörfundur Dalabyggð 29. júní, 2012 Fréttir Kjörfundur í Dalabyggð vegna kosninga til embættis forseta Íslands verður haldinn laugardaginn 30. júní 2012 kl. 10-20 í Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11, Búðardal. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Nánari upplýsingar um kosningarnar er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins. Sérstök athygli er vakin á því að kjörfundi lýkur kl. 20. Kjörstjórn Dalabyggðar Var efni síðunnar hjálplegt? JáNei