Á Silfurtúni eru 13 íbúar og starfsmenn eru um 12. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um störfin veitir Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, netfangið er silfurtun@dalir.is. Ráðið verður í störfin frá 20. ágúst eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Umsóknir og ferilskrá skal senda í tölvupósti á netfangið silfurtun@dalir.is.
Sjúkraliði
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Leyfisbréf er skilyrði.
Aðhlynning
Laust er til umsóknar starf í aðhlynningu á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Reynsla af aðhlynningu er æskileg.
Sjá einnig: Laus störf