Við vekjum athygli á því að ný gjaldskrá hefur tekið gildi á Héraðsbókasafni Dalasýslu fyrir árið 2022.
Árgjald kr. 2.500
Gjald fyrir millisafnalán kr. 3.800 fyrir hverja bók
Vanskil kr. 30 á dag eftir skiladag
Innheimta gjalda:
Árgjald : Innheimt í heimabanka eða greitt hjá bókaverði
Millisafnalán : Þegar bók er pöntuð í millisafnaláni er hægt að greiða strax hjá bókaverði, millifæra eða fá reikning sendan í heimabanka.
Vanskilagjald: Mánaðarlega verða vanskilagjöld innheimt í heimabanka að viðbættum kostnaði ef ekki er greitt hjá bókaverði um leið og bók er skilað.
Athugið að hjá bókaverði er eingöngu hægt að greiða með peningum eða millifæra beint á reikn: 0312 – 26 -1818 kt. 510694-2019, með skýringunni: „bókasafn“.
Sjá einnig: Gjaldskrár