Leikhópurinn Lotta á Ólafsdalshátíð!

DalabyggðFréttir

Leikhópurinn Lotta mun sýna nýtt leikrit um Stígvélaða köttinn á Ólafsdalshátíð, sunnudaginn 12. ágúst 2012
Þetta er sjötta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu. Síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi.
Leikgerðina um Stígvélaða köttinn gerði Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er annað leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006. Ný tónlist hefur einnig verið samin fyrir verkið og tóku bræðurnir Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir að sér það hlutverk.
Stígvélaða köttinn þekkja flestir en auk hans eru ævintýrin um Nýju fötin keisarans og Birnina þrjá fléttuð inn í söguþráðinn. Alls eru sex leikarar í sýningunni sem skipta á milli sín 13 hlutverkum. Þá er flutt lifandi tónlist, söngur og dans og því nóg um að vera. Herlegheitunum er síðan leikstýrt af Ágústu Skúladóttur sem stýrir einnig Dýrunum í Hálsaskógi sem sett verður upp í Þjóðleikhúsinu í haust.
Sýningin er um klukkustund að lengd og er aðgangur ókeypis.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei