Auglýst er eftir mögulegu húsnæði í Dalabyggð fyrir fólk á flótta.
Æskilegra er að húsnæðið sé til afnota til lengri tíma og þarf það að uppfylla skilyrði til fastrar búsetu og lögheimilisskráningar.
Þeir sem hafa mögulegt húsnæði á lausu hafi samband við Jóhönnu Maríu, verkefnastjóra með því að senda póst á johanna@dalir.is