Námskeið í Ólafsdal

DalabyggðFréttir

Tvö námskeið verða um helgina á vegum Ólafsdalsfélagsins. Annars vegar um grænmeti í Tjarnarlundi og grjót- og torfhleðsla í Ólafsdal.
Laugardaginn 1. september verður námskeiðið „Grænmeti og góðmeti“ í félagsheimilinu Tjarnarlundi kl. 14. Leiðbeinendur verða Sólveig Eiríksdóttir og Dominique Pledel, Slowfood Reykjavík. Námskeiðsgjald er 8.700 kr. fyrir fullorðna, en 1.000 kr. fyrir börn.
Helgina 1. – 2. september verður tveggja daga námskeið í grjót- og torfhleðslu í Ólafsdal. Leiðbeinandi verður Ari Jóhannesson. Námskeiðsgjald er 25.000 kr.
Skráning á námskeiðin er á netfangið olafsdalur@gmail.com. Skrá þarf nafn, kennitölu, fullt heimilisfang, síma og netfang.
Nánari upplýsingar um öll námskeiðin má finna á heimasíðu Ólafsdalsfélagsins, www.olafsdalur.is og í síma 896 1930.

Ólafsdalsfélagið

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei