Lausar lóðir í Búðardal – íbúðarhúsnæði og hesthús

DalabyggðFréttir

Dalabyggð auglýsir lausar lóðir samkvæmt deiliskipulagi til úthlutunar.

Íbúðahúsalóðir ætlaðar ýmist fyrir einbýlishús, parhús eða raðhús. Um er að ræða lóðirnar Ásuhvammur 1, 3, 6, 8 og 10, Bakkahvammur 2, 13, 20-26 og 28-34 ásamt Lækjarhvammi 24 og 26.
Deiliskipulag – Hvammar íbúðarsvæði

Hesthúsalóðir sem um ræðir standa við Hófavelli, Hófasel og Hófatún, alls 5 lóðir. Þær eru ætlaðar fyrir hesthús með gerði, heimilt er að reisa hesthús með áfastri hlöðu.
Deiliskipulag hesthúsahverfis

Aðrar íbúðarlóðir í Búðardal (norðan og sunnan Miðbrautar) eru á lokametrum skipulagsferlis og munu verða auglýsar þegar skipulagið hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Á undirsíðu um lausar lóðir má nálgast gagnlegar upplýsingar vegna lóða- og byggingamála: Lausar lóðir

Fyrir áhugasama sem vilja kynna sér búsetu í Dalabyggð má nálgast upplýsingar fyrir nýja íbúa hér: Nýir íbúar

Reglur og eyðublað fyrir umsókn um lóð má nálgast hér:
Reglur um úthlutun lóða
Umsókn um lóð

Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2025.
Þegar afgreiðslu umsókna er lokið verða allar auglýstar lóðir, sem ekki var úthlutað, lausar til umsóknar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei