Íþróttamiðstöð – opnun sundlaugar, 2. apríl

Kristján IngiFréttir

Á skírdag, fimmtudaginn 2. apríl næstkomandi, verður sundlaugin í Búðardal opnuð almenningi eftir langa bið. Íþróttamiðstöðin var vígð í lok febrúar, en frágangur sundlaugarsvæðis og sundlaugakerfis hefur staðið yfir síðustu vikur og er nú að ljúka. Sundlaugarsvæðið samanstendur af 25 metra útisundlaug, tveimur heitum pottum, vaðlaug, saunaklefa og köldum pott. Aðstaðan hefur vakið athygli fyrir einstakt útsýni út á Hvammsfjörð.

Opnunin markar tímamót fyrir íbúa Dalabyggðar, sem hafa lengi kallað eftir bættri aðstöðu til sund- og íþróttaiðkunar. Gera má ráð fyrir að sundlaugin verði mikilvægur samkomustaður fyrir íbúa jafnt og ferðamenn.

Sundlaugin verður opin samkvæmt auglýstum opnunartímum íþróttamiðstöðvarinnar.

Opnunartími íþróttamiðstöðvarinnar yfir páskanna er eftirfarandi:

Skírdagur, 2. apríl 10.00-16.00
Föstudagurinn langi, 3. apríl lokað
Laugardagurinn, 4. apríl 10.00-16.00
Páskadagur, 5. apríl lokað
Annar í páskum, 6. apríl 10.00-16.00

Bendum á öryggis- og umgengnisreglur sundlaugarinnar sem við hvetjum notendur til að kynna sér vel: Öryggis og -umgengisreglur_sundlaugar_2026

Hér má skoða gjaldskrá íþróttamiðstöðvarinnar: Gjaldskrá íþróttamiðstöðvar í Búðardal 2026
Afgreiðsla áskrifta fer fram í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei