Nám í ferðaþjónustu á Bifröst

DalabyggðFréttir

Háskólinn á Bifröst býður nú upp á nám í stjórnun og rekstri ferðaþjónustufyrirtækja. Námið kallast Stjórnun og samvinna í ferðaþjónustu.
Námið fer fram í 9 vikna fjarnámi með vinnulotum á Bifröst í upphafi og lok námstímans. Um er að ræða þrjú þriggja vikna námskeið sem eru sérsniðin eru fyrir rekstraraðila í ferðaþjónustu.
Markmiðin með náminu eru að auka þekkingu, hæfni og leikni stjórnenda og rekstraraðila ferðaþjónustufyrirtækja til þess að takast á við krefjandi starfsumhverfi og auka samvinnu þeirra í milli.
Kynningarfundur um námið verður í Leifsbúð í Búðardal miðvikudaginn 26. september kl. 20-21. Einnig eru nánari upplýsingar að finna á heimasíðu Háskólans á Bifröst.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei