Laust starf: Umsjónarmaður Vinnuskóla Dalabyggðar sumarið 2026

DalabyggðFréttir

Á sumrin er Vinnuskóli Dalabyggðar starftækur og allajafna vinsæll sem fyrsta starf ungmenna í sveitarfélaginu. Starf í skólanum gefur möguleika á því að njóta útiveru og eiga þátt í að prýða þorpið í samstarfi við ungt fólk.

Auglýst er eftir umsjónarmanni fyrir sumarið 2026 í ca. 80% starfshlutfall. Umsjónarmaður ber m.a. ábyrgð á að leiðbeina, útskýra og kenna.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stjórnun og skipulag starfs Vinnuskóla, vinna með þátttakendum og tryggja öryggi.
  • Leiðbeina þátttakendum um vinnubrögð og rétt verklag.
  • Vinna með jákvæð og uppbyggileg samskipti.
  • Skil á tímaskráningum og frammistöðumati þátttakenda.
  • Önnur störf samkvæmt starfslýsingu.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni.
  • Góð samskiptahæfni, útsjónarsemi og stundvísi.
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða ungmennum er kostur.
  • Reynsla af garðyrkju- eða iðnaðarstörfum (eða öðru sem nýtist í starfi) er kostur.
  • Hreint sakavottorð er nauðsynlegt.
  • Umsækjendur þurfa að hafa ná 20 ára aldri.
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg, góð enskukunnátta kostur.

Gert er ráð fyrir að umsjónarmaður hefji störf 1. júní.

Ráðgert er að Vinnuskóli Dalabyggðar sé starftækur frá 8. júní til 30. júlí, alla mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 – 15:00

Tekið er fram að hverskonar notkun tóbaks, nikótíns eða annarra vímuefna er með öllu óheimil í Vinnuskólanum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kjalar.

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí nk. Með umsókn þarf að berast ferilskrá og kynningarbréf. Umsóknum skal skila á netfangið dalir@dalir.is

Nánari upplýsingar veitir Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar í gegnum netfangið isak@dalir.is eða síma 430-4700 á opnunartíma skrifstofu Dalabyggðar.

Ath. þegar líða fer að vori verður vinnuskólinn sjálfur auglýstur og geta ungmenni sótt um í hann þá.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei