Sumarnámskeið 2026 – umsjón

DalabyggðFréttir

Dalabyggð leitar eftir áhugasömum aðilum til að vera með sumarnámskeið sumarið 2026 fyrir börn á aldrinum 6 – 12 ára (1.-7. bekk).

Erum tilbúin til samtals við alla sem hafa góðar hugmyndir sem gætu orðið að skemmtilegum námskeiðum.
Hvort sem þú ert með hugmynd tengda íþróttum, listum, útivist, tækni, leikjum, sköpun eða einhverju allt öðru, þá viljum við heyra frá þér!

Það er mikilvægast að til staða sér áhugi, frumkvæði og vilji til að skapa jákvæða, uppbyggjandi og skemmtilega upplifun fyrir börnin.
Nánari útfærsla s.s. aldursskiptin, tímabil og annað verður unnið í samstarfi við lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar.

Hafðu samband, segðu stuttlega frá þér og hugmyndinni þinni: isak@dalir.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei