Framboðsfundur
Framboðsfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 verður haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00 í félagsheimilinu Dalabúð. Húsið opnar kl. 19:45.
Þeir sem hafa áhuga á að vera kosnir í sveitarstjórn Dalabyggðar og vilja taka þátt í fundinum skulu tilkynna þátttöku sína á skrifstofu Dalabyggðar í síma 430 4700 eða á netfangið dalir@dalir.is fyrir kl. 13:00 miðvikudaginn 6. maí nk.
Upplýsingasíða
Upplýsingasíðu vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalabyggð má finna hér: Sveitastjórnarkosningar
Þar má m.a. finna upplýsingar um kjörfund, utankjörfundaratkvæðagreiðslu, kjörskrá og fl.
Einnig bendum við á kosningavef Landskjörstjórnar www.kosning.is
Kynningar frambjóðenda
Þeir sem vilja bjóða sig fram geta einnig sent upplýsingar um framboð sitt á johanna@dalir.is og verða þær birtar í þeirri röð sem þær berast. Sjá hér: Kynningar frambjóðenda
Kynningar þurfa að berast með fullu nafni og heimilisfangi viðkomandi, því þær upplýsingar þarf að rita á kjörseðil. Þá biðjum við um að hver kynning sé ekki lengri en 400 orð og gott að láta mynd fylgja með til birtingar.
