Í sumar bíður Dalabyggð upp á stað þar sem ungt fólk í Dalabyggð getur komið saman. Nokkur kvöld í sumar verður opið hús í Nýsköpunarsetrinu í sýsluhúsinu þar sem ungt fólk er boðið velkomið, árgangur 2009 og uppúr. Opið er frá kl. 20-23 og aðgangur er ókeypis. Maður er manns gaman og er allt ungt fólk er hvatt til að mæta og gera þetta að skemmtilegum kvöldstundum. Fyrstu tvö kvöldin eru 8. (mán) og 11. júní (fim). Kaffi er í boði og frjálst er að mæta með snarl, spil, tónlist, handavinnu og allskonar. Borðtennisborðið úr skólanum verður á staðnum. Athugið að þetta eru vímulaus kvöld.
Ef vilt vita meira eða ert með brilljant hugmynd hafðu þá samband á kiddi@ssv.is
