Auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar Dalabyggða – óveruleg aðalskipulagsbreyting, Árblik í Suðurdölum
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032.
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 16. apríl 2026 aðalskipulagsbreytingu fyrir Árblik í Suðurdölum, sem í gildandi aðalskipulagi er skilgreint sem afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF11) ætlað fyrir gestastofu og móttöku ferðamanna, tjaldsvæði og afþreyingu.
Breytingin felst í að auk gildandi skipulagsheimilda verði bætt inn heimild fyrir gististað í núverandi byggingu og landnotkun breytt í verslunar- og þjónustusvæði (VÞ21). Stærð svæðisins helst óbreytt eða 0,5 hektarar.
Sveitarstjórn telur breytinguna falla undir ákvæði 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega aðalskipulagsbreytingu. Breytingin hefur verið send til staðfestingar HMS.
