Tiltektar og fegrunar dagur í dalnum

DalabyggðFréttir

Næstkomandi mánudag, 15. júní, verður haldinn tiltektar- og fegrunardagur á vellinum í Dalnum okkar. Um er að ræða samstarfsverkefni Dalabyggðar og UDN, þar sem markmiðið er að bæta aðstöðu svæðisins og fegra umhverfið.

Hafist verður handa kl. 16:00 og stendur vinna til um 19:00. Í lok dags verður boðið upp veitingar.

Íbúar og aðrir velunnarar Dalins eru eindregið hvattir til að taka þátt og leggja sitt af mörkum. Verkefnin verða fjölbreytt, allt frá almennri tiltekt og hreinsun svæðisins yfir í smávægilegar lagfæringar og fegrun.

Skipuleggjendur vonast til góðrar þátttöku og hvetja sem flesta til að mæta og taka þátt í að gera Dalinn okkar enn fallegri.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei